Tilkynning þessi er birt í samræmi við 84. gr. laga um verðbréfaviðskipti, nr. 108/2007, þar sem segir að hafi útgefandi hækkað eða lækkað hlutafé sitt eða fjölgað eða fækkað atkvæðum skuli hann, á síðasta viðskiptadegi þess mánaðar er breytingarnar eiga sér stað, birta opinberlega heildarfjölda hluta og heildarfjölda atkvæða.
Aðalfundur Arion banka hf. sem fram fór þann 16. mars 2021 samþykkti að lækka hlutafé félagsins um 70.000.000 kr. að nafnvirði, sem nemur 70.000.000 hlutum, til jöfnunar á eigin hlutum félagsins. Lækkunin var framkvæmd og tók gildi 20. apríl 2021. Hlutafé félagsins lækkaði því úr 1.730.000.000 kr. í 1.660.000.000 kr. að nafnvirði sem skiptist í jafnmarga hluti og fylgir hverjum hlut eitt atkvæði.
Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:
Theodórs Friðbertssonar, forstöðumanns fjárfestatengsla Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760 eða Haraldar Guðna Eiðssonar, forstöðumanns samskiptasviðs, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s. 856 7108.