Arion banki hf. tilkynnir í dag eigendum 300 milljóna evra grænnar skuldabréfaútgáfu sem ber 4,875% vexti og er á gjalddaga 21. desember 2024 (ISIN: XS249876047) um nýtingu innköllunarheimilar.
Arion banki hf. hefur tilkynnt eigendum 300 milljóna evra grænnar skuldabréfaútgáfu sem ber 4,875% vexti og er á gjalddaga 21. desember 2024 (ISIN: XS249876047) um nýtingu innköllunarheimilar („Issuer Residual Call“). Nánari upplýsingar um innköllunina má finna í tilkynningu sem birt er opinberlega í kauphöllinni í Lúxemborg (https://www.bourse.lu/notices) þar sem skuldabréfið er skráð.
Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:
Theodórs Friðbertssonar, fjárfestatengslum Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760, eða Eiríks Dórs Jónssonar, forstöðumanns fjárstýringar, eirikur.jonsson@arionbanki.is, s. 856 7171