Arion banki: Niðurstaða skiptiútboðs sértryggðra skuldabréfa

Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Arion banki kaupir 3.500 m.kr. að nafnvirði í flokknum ARION CBI 25.

Í tengslum við útboð Arion banka í gær á sértryggðu skuldabréfaflokkunum ARION CB 27 og ARION CBI 30 bauðst eigendum flokksins ARION CBI 25 að selja bréf sín á fyrirframákveðna hreina verðinu 99,288 gegn kaupum í útboðinu. Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Arion banki kaupir 3.500 m.kr. að nafnvirði í flokknum ARION CBI 25.

Uppgjör endurkaupanna fer fram þann 10. júlí 2024. Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu.

Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:


Theodórs Friðbertssonar, fjárfestatengslum Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760, eða Eiríks Dórs Jónssonar, forstöðumanns fjárstýringar, eirikur.jonsson@arionbanki.is, s. 856 7171


Viðhengi: