Arion banki birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2024 fimmtudaginn 25. júlí, eftir lokun markaða.
Fundur/ vefstreymi fyrir markaðsaðila 26. júlí kl. 8:30
Fjárfestafundur fyrir markaðsaðila verður föstudaginn 26. júlí klukkan 8:30 í Borgartúni 19 þar sem Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka og Ólafur Hrafn Höskuldsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs munu kynna afkomu bankans og fara yfir stöðu efnahagslífsins. Fundurinn fer fram á ensku og verður einnig streymt beint.
Hægt verður að nálgast streymið á Lumiconnect og á fjárfestatengslavef bankans.
Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð á sömu síðu. Spurningum verður svarað að loknum kynningum.
Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:
Theodórs Friðbertssonar, fjárfestatengsl Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760 eða Haraldar Guðna Eiðssonar, forstöðumanns samskiptasviðs, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s. 856 7108.