Arion banki birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2024 miðvikudaginn 30. október. Fjárfestafundur verður haldinn fimmtudaginn 31. október

Arion banki birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2024 miðvikudaginn 30. október, eftir lokun markaða.

Fundur/ vefstreymi fyrir markaðsaðila 31. október kl. 8:30
Fjárfestafundur fyrir markaðsaðila verður fimmtudaginn 31. október klukkan 8:30 í Borgartúni 19 þar sem Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka og Ólafur Hrafn Höskuldsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs munu kynna afkomu bankans og Erna Björg Sverrisdóttir aðalhagfræðingur Arion banka mun fara yfir stöðu efnahagslífsins. Fundurinn fer fram á ensku og verður einnig streymt beint.

Hægt verður að nálgast streymið á Lumiconnect og á fjárfestatengslavef bankans.

Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð á sömu síðu. Spurningum verður svarað að loknum kynningum.

Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:


Theodórs Friðbertssonar, fjárfestatengsl Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760 eða Haraldar Guðna Eiðssonar, forstöðumanns samskiptasviðs, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s. 856 7108.


Viðhengi: