Arion banki verður með útboð á sértryggða skuldabréfaflokknum ARION CBI 28 fimmtudaginn 5. desember 2024.
ARION CBI 28 er verðtryggður skuldabréfaflokkur með föstum 4,25% vöxtum og lokagjalddaga 20. september 2028.
Fyrirkomulag útboðs verður með þeim hætti að öll samþykkt tilboð verða tekin á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfunni. Arion banki áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta.
Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur flokksins ARION CBI 25 eiga þess kost að selja bréf í flokknum gegn kaupum í ofangreindu útboði. Hreint verð í skiptiútboðinu er 99,6817.
Áætlaður uppgjörsdagur er 12. desember 2024. Greiðsla fer fram með reiðufé og/eða með skiptum á ARION CBI 25.
Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á netfangið skuldabrefamidlun@arionbanki.is fyrir kl. 16:00 þann 5. desember 2024.
Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:
Theodórs Friðbertssonar, fjárfestatengslum Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760, eða Eiríks Dórs Jónssonar, forstöðumanns fjárstýringar, eirikur.jonsson@arionbanki.is, s. 856 7171