Þann 19. desember 2024 veitti Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands Arion banka heimild fyrir allt að 3 milljarða króna endurkaupum eigin hluta, eða sem samsvarar um 19,4 milljónum hluta, og lækkun hlutafjár.
Bankinn á í dag 100.664.094 eigin bréf og heimildarskírteini sem eru 6,651% af útgefnum hlutum í bankanum.
Stjórn Arion banka hefur samþykkt endurkaup eigin hluta í samræmi við ofangreint og falið stjórnendum Arion Banka að taka ákvörðun um framkvæmd og tímasetningu endurkaupa og mun bankinn tilkynna um framkvæmdina þegar ákvörðun liggur fyrir.
Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:
Theodórs Friðbertssonar, fjárfestatengslum Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760, eða Eiríks Dórs Jónssonar, forstöðumanns fjárstýringar, eirikur.jonsson@arionbanki.is, s. 856 7171