Arion banki birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2025 miðvikudaginn 30. júlí. Fjárfestafundur verður haldinn fimmtudaginn 31. júlí

Arion banki birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2025 miðvikudaginn 30. júlí, eftir lokun markaða.

Fundur/ vefstreymi fyrir markaðsaðila 31. júlí kl. 8:30
Fjárfestafundur fyrir markaðsaðila verður fimmtudaginn 31. júlí klukkan 8:30 í Borgartúni 19 þar sem Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka mun kynna afkomu bankans og fara yfir stöðu efnahagslífsins. Fundurinn fer fram á ensku og verður einnig streymt beint.

Hægt verður að nálgast streymið á Lumiconnect og á fjárfestatengslavef bankans.

Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð á sömu síðu. Spurningum verður svarað að loknum kynningum.

Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:


Theodórs Friðbertssonar, fjárfestatengsl Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760 eða Haraldar Guðna Eiðssonar, forstöðumanns samskiptasviðs, samskiptasvid@arionbanki.is, s. 856 7108.