Arion banki lauk í dag útboði á sértryggða skuldabréfaflokknum ARION CBI 31 fyrir samtals 4.540 m.kr.
Í flokkinn ARION CBI 31 bárust 18 tilboð að fjárhæð 5.340 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,70 – 3,79%. Tilboð að nafnvirði 4.540 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 3,75%. Heildarstærð flokksins verður 7.580 m.kr. eftir útgáfuna.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 8. október 2025.
Skuldabréfin eru gefin út undir útgáfuramma sértryggðra skuldabréfa. Grunnlýsing útgáfurammans má nálgast hér.
Umsjónaraðili útboðsins er Markaðsviðskipti Arion banka.
Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:
Theodórs Friðbertssonar, fjárfestatengslum Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760, eða Eiríks Dórs Jónssonar, forstöðumanns fjárstýringar, eirikur.jonsson@arionbanki.is, s. 856 7171