Arion banki birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2025 miðvikudaginn 29. október, eftir lokun markaða.
Fundur/ vefstreymi fyrir markaðsaðila 30. október kl. 8:30
Fjárfestafundur fyrir markaðsaðila verður fimmtudaginn 30. október klukkan 8:30 í Borgartúni 19 þar sem Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka mun kynna afkomu bankans og Erna Björg Sverrisdóttir aðalhagfræðingur Arion banka mun fara yfir stöðu efnahagslífsins. Fundurinn fer fram á ensku og verður einnig streymt beint.
Hægt verður að nálgast streymið á Lumiconnect og á fjárfestatengslavef bankans.
Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð á sömu síðu. Spurningum verður svarað að loknum kynningum.
Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:
Theodórs Friðbertssonar, fjárfestatengslum Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760, eða Eiríks Dórs Jónssonar, forstöðumanns fjárstýringar, eirikur.jonsson@arionbanki.is, s. 856 7171