Arion banki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Arion banki lauk í dag útboði á sértryggða skuldabréfaflokknum ARION CBI 31 fyrir samtals 1.480 m.kr.

Í flokkinn ARION CBI 31 bárust 10 tilboð að fjárhæð 1.920 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,38 – 3,42%. Tilboð að nafnvirði 1.480 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 3,39%. Heildarstærð flokksins verður 9.060 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 10. desember 2025.

Skuldabréfin eru gefin út undir útgáfuramma sértryggðra skuldabréfa. Grunnlýsing útgáfurammans má nálgast hér.

Umsjónaraðili útboðsins er Markaðsviðskipti Arion banka.

Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:


Theodórs Friðbertssonar, fjárfestatengslum Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760, eða Eiríks Dórs Jónssonar, forstöðumanns fjárstýringar, eirikur.jonsson@arionbanki.is, s. 856 7171


Viðhengi: