Arion banki hf.: Útboð sértryggðra skuldabréfa þann 7. janúar 2026

Arion banki verður með útboð á sértryggða skuldabréfaflokknum, ARION CBI 31, miðvikudaginn 7. janúar 2026.

ARION CBI 31 er verðtryggður skuldabréfaflokkur með föstum 3,65% vöxtum og lokagjalddaga 20. ágúst 2031.

Fyrirkomulag útboðs verður með þeim hætti að öll samþykkt tilboð verða tekin á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfunni. Arion banki áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta.

Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur flokksins ARION CBI 26 eiga þess kost að selja bréf í flokknum gegn kaupum í ofangreindu útboði. Hreint verð í skiptiútboðinu er 99,6393.

Áætlaður uppgjörsdagur er 14. janúar 2026. Tekið er við greiðslu reiðufjár auk skipta á ARION CBI 26.

Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 7. janúar 2026 á netfangið skuldabrefamidlun@arionbanki.is.
 

Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:


Theodórs Friðbertssonar, fjárfestatengslum Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760, eða Eiríks Dórs Jónssonar, forstöðumanns fjárstýringar, eirikur.jonsson@arionbanki.is, s. 856 7171