Arion banki: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 14. janúar 2026 um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Í 3. viku 2026 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.

Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverðHlutir í eigu Arion
15.01.202614:00:21200.000205,0041.000.00033.416.144
15.01.202614:25:48250.000205,0051.250.00033.666.144
16.01.202609:55:19200.000205,0041.000.00033.866.144
16.01.202510:46:39150.000205,0030.750.00034.016.144
16.01.202511:00:55250.000204,0051.000.00034.266.144


1.050.000
215.000.00034.266.144

Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:

DagsetningTímiKeypt SDRViðskiptaverðKaupverð (SEK)SDR í eigu Arion
15.01.202610:00:375.00015,0075.0003.528.432
15.01.202610:00:375.00015,0075.0003.533.432
16.01.202610:13:134.93515,1574.7653.538.367
16.01.202610:21:546515,159853.538.432


15.000
225.7503.538.432

Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 3 samtals 36.739.576 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 3 samtals 37.804.576 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 2,66% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 1.050.000 hluti fyrir 215.000.000 kr. og 15.000 heimildarskírteini fyrir 225.750 sænskar krónur.

Heimilt er að kaupa allt að 516.796 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,04% af útgefnum hlutum og allt að 25.322.997 hluti á Íslandi, eða sem svara til 1,78% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 1,82% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 100.000.000 kr. í Svíþjóð og 4.900.000.000 kr. á Íslandi (samtals 5,0 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 31. desember 2026, með fyrirvara um samþykki aðalfundar Arion banka hf. fyrir áframhaldandi endurkaupum. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
 
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 1290/2025 um sama efni.

Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:


Theodórs Friðbertssonar, fjárfestatengslum Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760, eða Eiríks Dórs Jónssonar, forstöðumanns fjárstýringar, eirikur.jonsson@arionbanki.is, s. 856 7171