Arion banki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Arion banki lauk í dag útboði á sértryggða skuldabréfaflokknum ARION CBI 31 fyrir samtals 4.280 m.kr.

Í flokkinn ARION CBI 31 bárust 12 tilboð að fjárhæð 4.520 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,93% – 2,97%. Tilboð að nafnvirði 4.280 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 2,95%. Heildarstærð flokksins verður 18.580 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 12. mars 2026.

Skuldabréfin eru gefin út undir útgáfuramma sértryggðra skuldabréfa. Grunnlýsing útgáfurammans má nálgast hér.

Umsjónaraðili útboðsins er Markaðsviðskipti Arion banka.

Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:


Theodórs Friðbertssonar, fjárfestatengslum Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760, eða Eiríks Dórs Jónssonar, forstöðumanns fjárstýringar, eirikur.jonsson@arionbanki.is, s. 856 7171