Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 14. janúar 2026 um framkvæmd endurkaupa-áætlunar. Hlé verður gert á endurkaupum á hlutabréfum og heimildarskírteinum (SDR) Arion banka þann 11. mars 2026 þar sem aðalfundur bankans fer fram þann dag. Með fyrirvara um samþykki aðalfundar fyrir endurnýjun á heimild bankans til kaupa á eigin hlutum er ráðgert að endurkaup hefjist að nýju í kjölfar aðalfundarins.
Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:
Theodórs Friðbertssonar, fjárfestatengslum Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760, eða Eiríks Dórs Jónssonar, forstöðumanns fjárstýringar, eirikur.jonsson@arionbanki.is, s. 856 7171