Arion Bank hf.: Covered Bond Offering Results

Arion banki lauk í dag útboði á sértryggða skuldabréfaflokknum ARION CBI 31 fyrir samtals 2.940 m.kr.

Í flokkinn ARION CBI 31 bárust 13 tilboð að fjárhæð 3.240 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,27 – 3,33%. Tilboð að nafnvirði 2.940 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 3,30%. Heildarstærð flokksins verður 21.520 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 15. apríl 2026.

Skuldabréfin eru gefin út undir útgáfuramma sértryggðra skuldabréfa. Grunnlýsing útgáfurammans má nálgast hér.

Umsjónaraðili útboðsins er Markaðsviðskipti Arion banka.

For any further information please contact:


Theodór Friðbertsson, Investor Relations at Arion Bank, ir@arionbanki.is, tel. +354 856 6760 or Eirikur Dor Jonsson, Head of Treasury at Arion Bank, eirikur.jonsson@arionbanki.is, tel. +354 856 7171