Íslandsbanki hf. verður með útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 18.
júlí 2017.
Boðnir verða út verðtryggðu flokkarnir ISLA CBI 24 og ISLA CBI 30. Stefnt er að
töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 25. júlí 2017.
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast
frekari upplýsingar í síma 440 4490 eða með tölvupósti á vbm@isb.is.
Nánari upplýsingar veita:
* Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187.
* Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma
440 4005.
[]