Islandsbanki hf.: Ársuppgjör 2017

HELSTU ATRIÐI Í UPPGJÖRI ÁRSINS 2017

  * Hagnaður eftir skatta var 13,2 ma. kr. samanborið við 20,2 ma. kr. árið
    2016.  Munurinn skýrist aðallega af einskiptistekjum af sölu Borgunar á
    hlutum í Visa Europe 2016. Arðsemi eigin fjár var 7,5% á árinu, samanborið
    við 10,2% árið 2016.
  * Hagnaður af reglulegri starfsemi var 13,8 ma. kr. samanborið við 15,1 ma.
    kr.árið 2016.
  * Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 15% eiginfjárhlutfall
    þáttar 1 (CET1) var 10,3% á árinu 2017, samanborið við 10,7% árið 2016.
  * Hreinar vaxtatekjur voru 30,0 ma. kr. (2016: ISK 31,8 ma. kr.), sem er 5,7%
    lækkun milli ára. Vaxtamunur var 2,9% (2016: 3,1%).
  * Hreinar þóknanatekjur voru 13,8 ma. kr. samanborið við 13,7 ma. kr. árið
    2016, sem er 0,2% hækkun milli ára.
  * Stjórnunarkostnaður var 27 ma. kr., örlítið hærri en árið 2016. Þegar
    einskiptiskostnaður er undanskilinn hækkar kostnaður um 4,5% sem þýðir
    raunhækkun um 2,7% sé tillit tekið til verðbólgu. Þetta má aðallega rekja
    til fjárfestingar í tæknibúnaði þar á meðal Sopra kerfinu sem mun leysa af
    hólmi eldri grunnkerfi innlána og greiðslumiðlunar. Höfuðstöðvar bankans
    voru sameinaðar í nýjum höfuðstöðvum í Norðurturni í Kópavogi sem hafði
    tímabundinn viðbótarkostnað í för með sér.
  * Kostnaðarhlutfall var 62,5% (2016: 56,9%), en sértækur bankaskattur og
    einskiptiskostnaður eru undanskildir við útreikning kostnaðarhlutfalls.
  * Heildar eignir voru 1.036 ma. kr. (sept17: 1,078 ma. kr.). Útlán til
    viðskiptavina og lausafjársafn bankans voru samtals 92% af stærð
    efnahagsreiknings við lok tímabilsins.
  * Útlán til viðskiptavina jukust um 9,8% (67,3 ma. kr.) á árinu og voru 755
    ma. kr. í lok árs. Ný útlán voru 199 ma. kr. á árinu og dreifðust vel á
    milli viðskiptaeininga bankans.
  * Gæði eignasafns bankans halda áfram að batna, en hlutfall lána í vanskilum
    umfram 90 daga var 1,0% (sept17: 1,1%).
  * Innlán frá viðskiptavinum lækkuðu á árinu sem er í samræmi við væntingar um
    4,6% (27 ma. kr.) og voru 567 ma. kr. í árslok.
  * Eiginfjárhlutfall var 24,1% og eiginfjárhlutfall þáttar 1 (CET1) var 22,6% í
    árslok, samanborið við 22,6% og 22,5% við lok september 2017.
  * Lausafjárstaða bankans er sterk og umfram kröfur eftirlitsaðila og innri
    viðmið. Við árslok var lausafjárhlutfallið (LCR) 142% (sept17: 183%) og
    fjármögnunarhlutfallið (NSFR) var 117% (sept17: 115%).
  * Vogunarhlutfall var 16,2% við árslok samanborið við 15,3% við lok sept
    2017, sem telst hóflegt bæði í innlendum og erlendum samanburði.
  * Íslandsbanki er eini bankinn á Íslandi með lánshæfismat frá tveimur
    alþjóðlegum lánshæfismatsfyrirtækjum.  Í janúar 2017 hækkaði Fitch Ratings
    mat sitt í BBB/F3 með stöðugum horfum og í október 2017 hækkaði S&P Global
    Ratings mat sitt í BBB+/A-2 með stöðugum horfum. Fitch staðfesti matið í
    desember 2017.

HELSTU ATRIÐI Á 4. ÁRSFJÓRÐUNGI 2017

  * Hagnaður eftir skatta var 3,1 ma. kr. (4F16: 4,6 ma. kr.). Arðsemi eigin
    fjár var 6,9% á fjórðungnum, samanborið við 9,0% á 4F16.
  * Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 15% eiginfjárhlutfall
    þáttar 1 (CET1) var 8,1% á fjórðungnum (4Q16: 11,7%).
  * Hreinar vaxtatekjur voru 7,3 ma. kr. (4F16: 8,1 ma. kr.) og vaxtamunurinn
    var 2,8% (4F16: 3,2%).
  * Hreinar þóknanatekjur voru 3,6 ma. kr. (4F16: 3,8 ma. kr.).

Birna Einarsdóttir, bankastjóri

Árið  2017 var tímabil breytinga  og uppbyggingar fyrir  okkur hjá Íslandsbanka.
Við  innleiddum  nýtt  skipulag,  fullkláruðum  flutning í nýjar höfuðstöðvar og
endurnýjuðum  grunnkerfi  bankans.  Við  héldum  áfram að undirbúa bankann fyrir
breytt  alþjóðlegt  regluverk,  tæknilegar  áskoranir  og  að  takast á við nýja
keppinauta á markaði.

Þrátt  fyrir  þessar  miklu  breytingar  gekk  rekstur bankans mjög vel á árinu.
Lánasafn  bankans  óx  um  9,8% og  námu  ný lán 199 milljörðum króna og skilaði
bankinn  13,2 milljarði  króna  hagnaði  eftir  skatta með arðsemi af reglulegri
starfsemi upp á 10,3% sem er í samræmi við okkar markmið.

Lánshæfismat  bankans hækkaði  og stigum  við frekari  skref í átt að hagstæðari
fjármagnsskipan     með     fyrstu     víkjandi    skuldabréfaútgáfu    íslensks
fjármálafyrirtækis á erlendum markaði frá árinu 2008.

Bankinn  hélt stöðu sinni á árinu sem leiðandi bankastofnun á Íslandi í þjónustu
við  viðskiptavini  en  fimmta  árið  í  röð  mældist  bankinn hæstur í Íslensku
ánægjuvoginni  og  í  flestum  þáttum  þjónustukannana  á  meðal einstaklinga og
fyrirtækja og var jafnframt valinn besti bankinn á Íslandi að mati The Banker.

Við  erum spennt  að kynna  ýmsar nýjungar  á komandi  misserum sem munu gagnast
viðskiptavinum    okkar    og    treysta   stöðu   Íslandsbanka   sem   leiðandi
fjármálafyrirtækis á Íslandi.

FJÁRFESTATENGSL

Símafundur með fjárfestum á ensku

Markaðsaðilum er boðið upp á símafund í dag, 14. febrúar, kl. 9.30 á ensku.
Farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans.

Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á: ir@islandsbanki.is.
Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila fyrir
fundinn.

Afkomufundur á íslensku

Í dag, 14. febrúar,  kl. 11.30, munu Birna Einarsdóttir, bankastjóri
Íslandsbanka, og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu bankans á
opnum fjárfestafundi og svara fyrirspurnum. Fundurinn fer fram á íslensku og er
haldinn á 9. hæð höfuðstöðva bankans að Hagasmára 3. Boðið verður upp á
veitingar.

Skrá mig á fjárfestafund

Frekari fjárhagsupplýsingar:

Frekari upplýsingar tengdar ársuppgjörinu má finna á vef fjárfestatengsla
Íslandsbanka

Fjárhagsdagatal og þögul tímabil

Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér

Nánari upplýsingar veita

  * Fjárfestatengsl - Gunnar Sveinn Magnússon,
    gunnar.sveinn.magnusson@islandsbanki.is og í síma 440 4665
  * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir,
    edda.hermannsdottir@islandsbanki.is og í síma 440 4005

Viðhengi


[]


                 

Viðhengi: