Íslandsbanki hf. verður með útboð á sértryggðum skuldabréfum miðvikudaginn 26. maí 2021.

Boðinn verður út flokkurinn ISLA CB 27.

Uppgjörsdagur viðskipta er 2. júní 2021.

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið [email protected] fyrir kl. 16:00 þann 26. maí 2021.

Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengsl [email protected].