Helstu atriði í afkomu annars ársfjórðungs 2021 (2F21) – sterkur fjórðungur með jákvæða virðisrýrnun

Helstu atriði í afkomu á fyrri árshelmingi ársins 2021 (1H21) – viðsnúningur frá fyrra ári

Lykiltölur

    2F21 2F20 1H21 1H20 2020
REKSTUR Hagnaður (tap) eftir skatta, m.kr 5.431 1.245 9.046 (131) 6.755
  Arðsemi eigin fjár (eftir skatta) 11,6% 2,8% 9,7% (0,1%) 3,7%
  Vaxtamunur (af heildareignum) 2,4% 2,6% 2,4% 2,7% 2,6%
  Kostnaðarhlutfall¹ 49,9% 57,5% 50,6% 60,1% 54,3%
  Hrein virðisbreyting útlána til viðskiptavina (0,42%) 1,03% (0,12%) 1,28% 0,91%
             
    30.6.2021 31.3.2021 31.12.2020 30.9.2020 30.6.2020
EFNAHAGUR Útlán til viðskiptavina, m.kr 1.089.723 1.029.415 1.006.717 970.309 933.320
  Eignir samtals, m.kr 1.446.860 1.385.235 1.344.191 1.328.724 1.303.256
  Áhættuvegnar eignir, m.kr 924.375 954.712 933.521 942.339 923.133
  Innlán frá viðskiptavinum, m.kr 765.614 698.575 679.455 698.610 681.223
  Útlán til viðskiptavina / innlán frá viðskiptavinum 142% 147% 148% 139% 137%
  Hlutfall lána með laskað lánshæfi² 2,1% 2,4% 2,9% 3,3% 3,6%
             
             
LAUSAFÉ Lausafjárhlutfall (LCR), allir gjaldmiðlar 187% 172% 196% 136% 179%
  Hlutfall stöðugrar fjármögnunar (NSFR), allir gjaldmiðlar 122% 119% 123% 113% 117%
             
             
EIGIÐ FÉ Eigið fé samtals, m.kr 190.355 185.471 186.204 182.509 179.722
  Eiginfjárhlutfall 22,9% 21,9% 23,0% 22,2% 22,2%
  Eiginfjárhlutfall þáttar 1 20,1% 19,2% 20,1% 19,4% 19,4%
  Vogunarhlutfall 12,4% 12,6% 13,6% 13,4% 13,4%
             

1. Reiknað sem: (stjórnunarkostnaður + framlag í Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta – einskiptisliðir) / (heildarrekstrartekjur – einskiptisliðir).        

2. Stig 3, útlán til viðskiptavina, vergt bókfært virði.                                        


Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka

Við erum ánægð með rekstrarniðurstöðu Íslandsbanka á öðrum ársfjórðungi sem var 5,4 milljarðar en það samsvarar 11,6% arðsemi á ársgrundvelli og er yfir fjárhagslegum markmiðum bankans. Virðisrýrnun á fjórðungnum var jákvæð um 1,1 milljarð króna og er það mikill viðsnúningur frá öðrum ársfjórðungi í fyrra þar sem COVID-19 hafði mikil áhrif. Góður gangur er í þóknunum miðað við sama tímabil í fyrra og kostnaðarhlutfallið er rétt undir 50%. Lánasafnið heldur áfram að stækka og hefur vaxið um rúmlega 8% frá áramótum. Við sjáum að vöxturinn er helstur í húsnæðislánum þar sem góður gangur hefur verið á fasteignamarkaðnum síðustu misseri en einnig hefur verið aukning í útlánum bæði til minni og stærri fyrirtækja.

Það má með sanni segja að fyrri helmingur ársins hafi verið viðburðaríkur hjá bankanum. Hlutabréf Íslandsbanka voru tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland þann 22. júní. Um var að ræða stærsta frumútboð hlutabréfa sem farið hefur fram hér á landi. Metþátttaka var í hlutafjárútboðinu og margföld umframeftirspurn og er bankinn með mesta fjölda hluthafa allra skráðra félaga á Íslandi.

Fjárfestatengsl

Rafrænn afkomufundur Íslandsbanka 2F2021

Fundinum verður streymt í vefstreymi er haldið verður miðvikudaginn 28. júlí kl. 16.00 fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Birna Einarsdóttir, bankastjóri og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri munu kynna afkomu bankans og helstu atriði í rekstri hans á fyrsta ársfjórðungi. Fundurinn fer fram á ensku.
Skráning á fundinn fer fram hér. Upptaka af fundinum verður aðgengileg á síðu fjárfestatengsla að honum loknum.
Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn og lagt fram spurningar í gegnum eftirfarandi símanúmer:

Ísland: +354 800 74 37

Danmörk: +45 354 45 577

Svíþjóð: +46 8 566 42 651

Noregur: +47 235 00 243

Bretland: +44 33 330 00 804

Bandaríkin: +1 631 913 1422

Aðgangskóði: 67974052

Öll gögn tengd uppgjöri ásamt upplýsingum um fjárhagsdagatal og þögul tímabil má finna hér: https://www.islandsbanki.is/is/flokkur/bankinn/fjarfestatengsl

Nánari upplýsingar veita:

Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlegast skráðu þig hér: https://www.islandsbanki.is/is/grein/postlisti_ir

Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er alhliða banki sem leggur áherslu á að koma til móts við þarfir viðskiptavina sinna og á sér langa sögu sem nær aftur til ársins 1875. Bankinn leggur áherslu á traustan rekstur og að hafa jákvæð áhrif í samfélaginu en hlutverk bankans er að vera hreyfiafl til góðra verka svo viðskiptavinir okkar nái árangri. Með framtíðarsýnina að vera 1 í þjónustu að leiðarljósi vinna þrjár viðskiptaeiningar þétt saman til þess að viðhalda góðum viðskiptasamböndum. Markaðshlutdeild bankans er sterk og rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið á landinu og styður um leið við viðskiptavini sína á stafrænni vegferð þeirra. Umhverfið sem bankinn starfar í er eftirsóknarvert og er Íslandsbanki vel í stakk búinn að takast á við tækifærin framundan með öflugar tæknilegar stoðir og sterkan efnahagsreikning. Íslandsbanki er með lánshæfismatið BBB/A-2 frá S&P Global Ratings. Hlutabréf bankans eru skráð á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.


 

Viðhengi