EKKI TIL ÚTGÁFU, BIRTINGAR EÐA DREIFINGAR TIL BANDARÍKJANNA EÐA YFIRRÁÐASVÆÐA ÞESS (Þ.Á.M PÚERTÓ RÍKÓ, BANDARÍSKU JÓMFRÚAREYJAR, GVAM, BANDARÍSKA SAMÓA, VARSÍMAEYJAR EÐA NORÐUR-MARÍANAEYJAR) EÐA HVERRAR ÞEIRRAR LÖGSÖGU ÞAR SEM HIÐ SAMA TELDIST BROT Á LÖGUM VIÐKOMANDI LÖGSÖGU (SJÁ NÁNAR TAKMARKANIR Í HJÁLAGÐRI TILKYNNINGU UM ENDURKAUPATILBOÐ).
Íslandsbanki hf. (hér eftir bankinn) tilkynnir í dag um enduropnun og framlengingu á endurkaupatilboði til eigenda 300 milljóna evra skuldabréfaútgáfu sem ber 7,375% vexti og er á gjalddaga 17. maí 2026 (ISIN: XS2553604690) (hér eftir skuldabréfin) gegn greiðslu reiðufjár (hér eftir endurkaupatilboðið), sem nánar er lýst í hjálagðri tilkynningu.
Við lok upphaflegs gildistíma endurkaupatilboðsins, kl. 15:00 að íslenskum tíma, 24. júní 2024, hafði bankanum borist gild tilboð samtals að fjárhæð 258.974.000 evra samkvæmt endurkaupatilboðinu, sem nemur 86,32% af útistandandi höfuðstól skuldabréfanna. Ef bankinn uppfyllir skilyrði skilmála skuldabréfanna, (e. Terms and Conditions) (hér eftir skilmálarnir), þá hyggst bankinn nýta sér rétt sinn til að innleysa þau skuldabréf sem bankanum bárust ekki gild tilboð í, í endurkaupatilboðinu (e. Clean-up Redemption Option). Bankinn hefur þar af leiðandi ákveðið að opna endurkaupatilboðið að nýju og framlengja gildistíma þess til kl. 15:00, að íslenskum tíma, þann 26. júní 2024 (e. Expiration Deadline) og til samræmis breytt tímasetningu verðlagningar endurkaupatilboðsins til kl. 10:00 að íslenskum tíma þann 27. júní 2024, eins og nánar er lýst í hjálagðri tilkynningu.
Endurkaupatilboðið er háð þeim skilmálum og skilyrðum sem er að finna í endurkaupatilboðslýsingunni (e. Tender Offer Memorandum) sem dagsett er 17. júní 2024, með þeim breytingum á skilmálum endurkaupatilboðsins sem greinir í hjálagðri tilkynningu. Endurkaupatilboðslýsinguna má nálgast (háð tilteknum takmörkunum á dreifingu) hjá umsýsluaðila endurkaupanna (e. Tender Agent): Kroll Issuer Services Limited (sími: +44 20 7704 0880; netfang: islandsbanki@is.kroll.com; vefsíða: https://deals.is.kroll.com/islandsbanki).
Umsjónaraðilar (e. Dealer Managers) með endurkaupatilboðinu eru Deutsche Bank Aktiengesellschaft og NatWest Markets N.V.
MAR legend - Tender offer
Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem innihalda upplýsingar tengdar endurkaupatilboðinu sem lýst er hér að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.
Frekari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl - Bjarney Anna Bjarnadóttir, ir@islandsbanki.is
Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is