Íslandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs á grænum skuldabréfum í íslenskum krónum

Íslandsbanki hf. hefur lokið útboði á nýjum flokki almennra skuldabréfa (e. senior preferred) ISB 36 1114 GB fyrir samtals 3.990 m.kr.

Heildareftirspurn í útboðinu var 5.590 m.kr. á bilinu 3,50% til 4,40%. Samþykkt tilboð voru samtals 3.990 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,83%.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 14. nóvember 2024.
 
Umsjónaraðili útboðsins var Verðbréfamiðlun Íslandsbanka.

Frekari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl - Bjarney Anna Bjarnadóttir, ir@islandsbanki.is
Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is

MAR Legend
Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.


Viðhengi: