Íslandsbanki hf.: Útboð á sértryggðum skuldabréfum 26. maí

Íslandsbanki verður með útboð á nýjum sértryggðum skuldabréfaflokki, ISB CB 31, mánudaginn 26. maí 2025.

ISB CB 31 er nýr óverðtryggður skuldabréfaflokkur sem ber fasta vexti með árlegri vaxtagreiðslu. Lokagjalddagi er 3. júní 2031.

Fyrirkomulag útboðs verður með þeim hætti að öll samþykkt tilboð verða tekin á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfunni. Bankinn áskilur sér rétt til að samþykkja eða hafna tilboðum að hluta til eða öllu leyti.

Áætlaður uppgjörsdagur viðskipta er 3. júní 2025.

Sértryggðu skuldabréfin verða gefin út undir útgáfuramma Íslandsbanka fyrir sértryggð skuldabréf. Grunnlýsingu ásamt viðaukum má finna á vefsíðu fjárfestatengsla: Sértryggð skuldabréf grunnlýsing.

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 26. maí 2025.

Frekari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl - Bjarney Anna Bjarnadóttir, ir@islandsbanki.is
Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is

Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.