Vísað er til fyrri tilkynningar Íslandsbanka hf. (hér eftir bankinn) um framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum að fjárhæð 15 milljarðar króna, sem tilkynnt var um 7. júlí 2025 og hófst 8. júlí 2025. Tilkynnt var um lok þeirrar umferðar 7. ágúst 2025. Bankinn hyggst nú halda áfram framkvæmd framangreindrar endurkaupaáætlunar í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé bankans.
Samþykkt og útgefið hlutafé bankans nemur 1.880.470.770 almennra hluta, þar sem hver hlutur er jafnvirði fimm króna. Við dagsetningu tilkynningar þessarar á bankinn 31.151.953 eigin hluti.
Að þessu sinni er áætlað að kaupa allt að 9.000.000 hluti, sem jafngildir 0,48% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 1.000.000.000. Endurkaupin hefjast þann 12. ágúst 2025 og munu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 30. september 2025.
Verð fyrir hvern keyptan hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Kaup hvers dags munu að hámarki nema 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf í bankanum á skipulegum markaði Nasdaq Iceland í júlímánuði 2025.
Endurkaupin verða framkvæmd af ACRO verðbréfum hf. sem tekur ákvarðanir um kaup á hlutafé fyrir hönd bankans og tímasetningu viðskipta óháð Íslandsbanka.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglur nr. 1275/2024 um sama efni. Samþykki fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.
Viðskipti með hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í síðasta lagi í lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.
Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi endurkaupaáætlunina sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.
Frekari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl - Bjarney Anna Bjarnadóttir, ir@islandsbanki.is
Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is