Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 11. ágúst 2025 um áframhaldandi framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum, sem upphaflega var tilkynnt um 7. júlí 2025. Í viku 33 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 1.100.000 eigin hluti að kaupverði alls kr. 139.625.000 eins og nánar er greint í þessari tilkynningu.
Í viku 33 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 1.100.000 eigin hluti að kaupverði alls kr. 139.625.000 eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
12.8.25 | 12:53 | 250.000 | 127,250 | 31.812.500 | 31.401.953 |
13.8.25 | 11:05 | 100.000 | 127,500 | 12.750.000 | 31.501.953 |
13.8.25 | 15:22 | 250.000 | 126,750 | 31.687.500 | 31.751.953 |
14.8.25 | 09:48 | 250.000 | 127,250 | 31.812.500 | 32.001.953 |
15.8.25 | 15:25 | 250.000 | 126,250 | 31.562.500 | 32.251.953 |
Samtals vika 33 | 1.100.000 | 139.625.000 |
Fyrir framangreind viðskipti í viku 33 átti bankinn 31.151.953 hluti, sem nemur 1,66% af útgefnum hlutum. Í þessari umferð endurkaupa hefur bankinn keypt 1.100.000 hluti, sem nemur 0,06% af útgefnum hlutum og nemur heildarkaupverð eigin hluta samtals kr. 139.625.000 í umferðinni.
Í þessari umferð endurkaupa er áætlað að kaupa allt að 9 milljón hluti sem jafngildir 0,48% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 1.000.000.000. Endurkaupunum var haldið áfram 12. ágúst síðastliðinn og munu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 30. september 2025.
Bankinn á samtals 32.251.953 eigin hluti eða sem nemur 1,72% af útgefnum hlutum í bankanum.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglur 1275/2024 um sama efni. Samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.
Frekari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl - Bjarney Anna Bjarnadóttir, ir@islandsbanki.is
Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is