Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 7.120 m.kr.
Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISB CB 31 voru samtals 3.920 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 7,42%. Heildartilboð voru 4.940 m.kr. á bilinu 7,34% til 7,46%.
Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISB CBI 32 voru samtals 1.120 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,69%. Heildartilboð voru 2.180 m.kr. á bilinu 3,65% til 3,73%.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 23. september 2025.
Niðurstaða endurkaupa á ISB CBI 26 verður tilkynnt á morgun.
Umsjónaraðili útboðsins var Verðbréfamiðlun Íslandsbanka.
Frekari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl - Bjarney Anna Bjarnadóttir, ir@islandsbanki.is
Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is