Íslandsbanki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun - vika 39

Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 15. september 2025 um áframhaldandi framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum, sem upphaflega var tilkynnt um 7. júlí 2025. Í viku 39 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 1.974.218 eigin hluti að kaupverði alls kr. 244.314.546 eins og nánar er greint í þessari tilkynningu.

Í viku 39 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 1.974.218 eigin hluti að kaupverði alls kr. 244.314.546 eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímasetning viðskiptaKeyptir hlutirViðskiptaverðKauperð (kr)Eigin hlutir eftir viðskipti
22.9.2511:41:34200.000125,0025.000.000 41.814.174
22.9.2515:08:11300.000125,0037.500.000 42.114.174
23.9.2510:22:40200.000124,7524.950.000 42.314.174
23.9.2515:00:27200.000124,5024.900.000 42.514.174
24.9.2510:07:23200.000123,0024.600.000 42.714.174
24.9.2510:41:4082.000122,7510.065.500 42.796.174
24.9.2512:59:06200.000122,7524.550.000 42.996.174
24.9.2514:31:32100.000122,7512.275.000 43.096.174
25.9.2510:26:47100.000122,5012.250.000 43.196.174
25.9.2510:32:1837.537122,504.598.283 43.233.711
25.9.2513:23:25150.000123,0018.450.000 43.383.711
25.9.2514:36:40204.681123,0025.175.763 43.588.392
  Samtals vika 391.974.218 244.314.546

Fyrir framangreind viðskipti í viku 39 átti bankinn 41.614.174 eigin hluti, sem nemur 2,21% af útgefnum hlutum. Í þessari umferð endurkaupa hefur bankinn keypt 4.460.892 hluti, sem nemur 0,24% af útgefnum hlutum og nemur heildarkaupverð eigin hluta samtals kr. 561.086.151 í umferðinni.

Í þessari umferð endurkaupa er áætlað að kaupa allt að 40 milljón hluti sem jafngildir 2,13% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 5.000.000.000. Endurkaupunum var haldið áfram 15. september síðastliðinn og munu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 31. desember 2025.

Bankinn á samtals 43.588.392 eigin hluti eða sem nemur 2,32% af útgefnum hlutum í bankanum.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglur 1275/2024 um sama efni. Samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.

Frekari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl - Bjarney Anna Bjarnadóttir, ir@islandsbanki.is