Íslandsbanki birtir afkomu fyrsta ársfjórðungs 2026 þann 7. maí 2026. Rafrænn afkomufundur verður föstudaginn 8. maí 2026

Íslandsbanki mun birta afkomu fyrir fyrsta ársfjórðung 2026 eftir lokun markaða þann 7. maí 2026. Rafrænn afkomufundur verður föstudaginn 8. maí klukkan 8.30.

Íslandsbanki mun halda rafrænan afkomufund föstudaginn 8. maí kl. 8.30 fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri og Ellert Hlöðversson, fjármálastjóri munu kynna afkomu bankans og helstu atriði í rekstri hans á ársfjórðungnum. Fundurinn fer fram á ensku. 
Fundurinn verður aðgengilegur í gegnum hlekk á vefsvæði fjárfestatengsla á vef bankans. Upptaka af fundinum verður aðgengileg á sama stað að honum loknum. Þátttaka, og möguleikinn á að bera fram skriflegar spurningar, fer fram hér. Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn og lagt fram spurningar munnlega með því að skrá sig á þessari síðu. Að skráningu lokinni færðu afhent símanúmer og auðkenni fyrir fundinn. Allar upplýsingar um fundinn má finna hér

 

Frekari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl - Karen Sif Magnúsdóttir, ir@islandsbanki.is
Fyrirspurnir frá fjölmiðlum, pr@islandsbanki.is