Íslandsbanki hf.: Tilkynning um endurkaupatilboð á útistandandi skuldabréfum samhliða mögulegri útgáfu á grænum almennum skuldabréfum í norskum og sænskum krónum.

Íslandsbanki hf. (hér eftir „bankinn“) hefur í dag til skoðunar útgáfu á grænum almennum skuldabréfum (e. senior preferred) til 3 ára undir EMTN útgáfuramma bankans (hér eftir nýja útgáfan).

Samhliða nýju útgáfunni gerir bankinn eigendum eftirfarandi skuldabréfa endurkaupatilboð. Kaupverðið sem tilgreint er hér að neðan er aðeins leiðbeinandi og ekki bindandi og kann að taka breytingum:
SEK FRN (ISIN: XS2715286394) á gjalddaga 8. nóvember 2026 á 3mS +25bps
SEK FRN (ISIN: XS2751578050) á gjalddaga 25. janúar 2027 á 3mS +30bps
NOK FRN (ISIN: NO0013132159) á gjalddaga 25. janúar 2027 á 3mN +27.5bps

Endanlegt kaupverð, ef af verður, er ákveðið af bankanum einum, m.a. með hliðsjón af markaðsaðstæðum og öðrum viðeigandi þáttum.

Endurkaupatilboðið er háð er háð því skilyrði, samkvæmt einhliða og óskoraðri ákvörðun bankans, að:
(i) kjör og skilmálar nýju útgáfunnar séu fullnægjandi að mati bankans, þar á meðal en ekki takmarkað við verð og heildarstærðar nýju útgáfunnar; og
(ii) útgáfa nýju skuldabréfanna takist með fullnægjandi hætti (þar með talið að bankinn fái andvirði nýju útgáfunnar greitt).

Bankinn áskilur sér rétt til, að eigin ákvörðun og án fyrirvara, að breyta skilmálum (þ.m.t. leiðbeinandi verðlagningu) eða falla frá tilboðinu hvenær sem er.

MAR legend - Tender offer
Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem innihalda upplýsingar tengdar endurkaupatilboðinu sem lýst er hér að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.

Frekari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl - Karen Sif Magnúsdóttir, ir@islandsbanki.is
Fyrirspurnir frá fjölmiðlum, pr@islandsbanki.is