Með tilvísun til tilkynningar Marel frá 3. desember sl. varðandi veitingu
kauprétta til framkvæmdastjórnar félagsins, að forstjóra félagsins
undanskildum, sem sjá má hér staðfestist hér með að í dag 9. febrúar 2015,
hefur verið gengið frá kaupréttarsamningum á grundvelli þessa við hvern og einn
meðlim framkvæmdastjórnarinnar.
Eins og greint var frá í tilkynningunni fær hver og einn kaupréttarhafi sama
magn kauprétta eða 225 þúsund. Nánari upplýsingar um meginefni og helstu
skilmála kaupréttarsamninganna sem hafa nú verið samþykktir af kaupréttarhöfum
má finna í fyrrnefndri tilkynningu.