Marel hf. mun birta uppgjör sitt fyrir 2. ársfjórðung 2016 eftir lokun markaðar
þann 27. júlí 2016.
Marel boðar til kynningarfundar með markaðsaðilum og fjárfestum, þar sem Árni
Oddur Þórðarson, forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna uppgjör
félagsins fyrir 2. ársfjórðung 2016.
Kynningarfundurinn verður haldinn fimmtudaginn 28. júlí kl. 8:30 í húsnæði
félagsins, Austurhrauni 9, Garðabæ.
Fundinum verður einnig netvarpað: www.marel.com/webcast
Morgunverður frá kl. 8:00.