Marel: Úthlutun kauprétta

Stjórn Marel hf. ákvað þann 24. apríl 2020 að veita starfsmönnum kauprétti að allt að 6.115.000 hlutum í félaginu, þar af 2.420.000 til framkvæmdastjórnar. Kaupréttirnir verða veittir meðlimum framkvæmdastjórnar og tilteknum starfsmönnum félagsins í lykilstöðum.

Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Skilmálar eru í samræmi við kaupréttarkerfi sem samþykkt var á aðalfundi Marel hf. þann 6. mars 2019 og í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á aðalfundi Marel hf. þann 18. mars 2020.

Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:

Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Marel hf. hefur veitt starfsmönnum sínum nemur nú 24,1 milljónum hluta, eða um 3,1% hlutafjár í félaginu, og er þá meðtalin þessi nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður félagsins vegna nýju samninganna á næstu þremur árum er áætlaður um 3,5 milljónir evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.

Nánari upplýsingar um kauprétti sem veittir eru framkvæmdastjórn Marel:

NafnStaðaNýr kauprétturÁður úthlutaður, ónýttur kauprétturHlutafjáreign innherjaHlutafjáreign fjárhagslega tengdra aðila
Árni Oddur ÞórðarsonForstjóri580.000 2.260.000 64.634 67.235
      
Linda JónsdóttirFjármálastjóri320.000 1.855.000 182.500 0
      
Árni SigurðssonFramkvæmdastjóri stefnumótunar og stefnumarkandi rekstrareininga320.000 1.855.000 100.000
      
Roger ClaessensFramkvæmdastjóri kjúklingaiðnaðar200.000 250.000 0
      
David WilsonFramkvæmdastjóri kjötiðnaðar200.000 957.000 195.857 0
      
Guðbjörg Heiða GuðmundsdóttirFramkvæmdastjóri fiskiðnaðar200.000 40.000 0
      
Folkert BölgerFramkvæmdastjóri framleiðslu- og aðfangastýringar200.000 500.000 17.862 0
      
Ulrika LindbergFramkvæmdastjóri alþjóðamarkaða og þjónustu200.000 250.000 0
      
Anna Kristín PálsdóttirFramkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar200.000 67.000 0

 



1 Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á Euronext Amsterdam þann 24. apríl 2020, þ.e. EUR 3,80 á hlut.