Brim hf. bíður hluthöfum kaup á hlutabréfum að nafnvirði 70 milljónir króna

Brim hf. bíður hluthöfum kaup á hlutabréfum að nafnvirði 70 milljónir króna að nafnverði á genginu 88 kr. fyrir hvern hlut.  Arctica Finance hf.  hefur umsjón með viðskiptum.   Aðalfundur félagsins fyrr á þessu ári veitti stjórn þess heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimildin og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi má eigi vera hærra en í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem hærra er. Tilgangur viðskiptanna er að tryggja félaginu eigin hluti til frekari vaxtar og fjárfestinga.