Eik fasteignafélag hf.: Niðurstöður aðalfundar 2021

Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf., sem haldinn var mánudaginn 26. apríl 2021 kaus eftirtalda einstaklinga í stjórn félagsins:

- Eyjólfur Árni Rafnsson

- Guðrún Bergsteinsdóttir

- Hersir Sigurgeirsson

- Kristín Friðgeirsdóttir

- Ragnheiður Harðar Harðardóttir

Nýkjörin stjórn hefur haldið fund og skipt með sér verkum. Eyjólfur Árni Rafnsson er formaður stjórnar og Guðrún Bergsteinsdóttir varaformaður.

Á aðalfundinum voru samþykktar tillögur stjórnar eins og nánar greinir í viðhengi. Að auki fylgir með starfskjarastefna með þeirri breytingu sem samþykkt var á fundinum.



Viðhengi: