Eik fasteignafélag hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Eik fasteignafélag hf.: Stjórnarframboð dregið til baka. Kallað eftir framboðum.


Reynir Sævarsson hefur dregið til baka framboð sitt til stjórnar í Eik fasteignafélagi hf. en hann er einn þeirra einstaklinga sem tilnefningarnefnd lagði til að yrði kjörinn í stjórn á aðalfundi.

Fresti til að tilkynna um framboð til stjórnar á netfangið stjornun@eik.is lýkur sjö sólarhringum fyrir aðalfund, nánar tiltekið kl. 16.00 þriðjudaginn 29. mars 2022.

Tilnefningarnefnd hefur hug á því að fjalla um framboð sem berast fyrir lok sunnudagsins 20. mars 2022.