Eik fasteignafélag hf. mun birta uppgjör þriðja ársfjórðungs 2023 eftir lokun markaða miðvikudaginn 15. nóvember nk. Rafrænn kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 16. nóvember nk. klukkan 8:30. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.
Tengill á fundinn mun verða sendur út samhliða birtingu uppgjörsins.
