Eimskipafélag Íslands hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Eimskip stefnir að undirritun samnings um smíði skipa


Í maí 2016 undirrituðu Eimskip og grænlenska skipafélagið Royal Arctic Line viljayfirlýsingu um að meta möguleika á samstarfi um smíði á gámaskipum. Eimskip hefur átt í samningaviðræðum við skipasmíðastöðvar í Kína í tengslum við smíði á tveimur 2.150 gámaeininga skipum með ísklassa. Viðræður eru enn í gangi en stefnt er að vali á skipasmíðastöð og undirritun samnings á næstu dögum. Ráðgert er að skipin tvö verði afhent fyrir árslok 2019.