Í 51 viku 2021 keypti Festi alls 507.000 eigin hluti fyrir 112.383.000 kr. eins og hér segir:
| Vika | Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Keyptir hlutir alls |
| 51 | 20.12.2021 | 13:25:56 | 102.000 | 219,000 | 22.338.000 | 707.000 |
| 51 | 21.12.2021 | 15:05:04 | 135.000 | 220,000 | 29.700.000 | 842.000 |
| 51 | 22.12.2021 | 14:48:08 | 135.000 | 224,000 | 30.240.000 | 977.000 |
| 51 | 23.12.2021 | 11:49:49 | 135.000 | 223,000 | 30.105.000 | 1.112.000 |
| 507.000 | 112.383.000 | 1.112.000 |
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka II við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.
Fyrir kaupin þá átti Festi 6.000.000 hluti eða 1,85% af útgefnu hlutafé. Festi hefur nú keypt samtals 1.112.000 eigin hluti fyrir 246.828.000 kr. og á í dag 7.112.000 hluti sem samsvarar 2,20% af hlutafé félagsins.Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 14. desember 2021 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 5.000.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,55% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 1.200 milljónum króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. (mki@festi.is).
