Í 52 viku 2021 keypti Festi alls 270.000 eigin hluti fyrir 61.425.000 kr. eins og hér segir:
| Vika | Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Keyptir hlutir alls |
| 52 | 28.12.2021 | 15:15:53 | 135.000 | 228,000 | 30.780.000 | 1.247.000 |
| 52 | 29.12.2021 | 12:29:04 | 135.000 | 227,000 | 30.645.000 | 1.382.000 |
| 270.000 | 61.425.000 | 1.382.000 |
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka II við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.
Fyrir kaupin þá átti Festi 6.000.000 hluti eða 1,85% af útgefnu hlutafé. Festi hefur nú keypt samtals 1.382.000 eigin hluti fyrir 308.253.000 kr. og á í dag 7.382.000 hluti sem samsvarar 2,28% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 14. desember 2021 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 5.000.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,55% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 1.200 milljónum króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. (mki@festi.is).
