Festi hf. - Boðun hluthafafundar

Festi hf.: Aðalfundur 5. mars 2025 - endanleg dagskrá og tillögur.


Aðalfundur Festi hf. verður haldinn miðvikudaginn 5. mars 2025 klukkan 10:00 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 – 14, Kópavogi.

Engar breytingar hafa orðið á dagskrá og tillögum sem birtar voru með fundarboði þann 10. febrúar sl. Ekki bárust frekari tillögur frá hluthöfum að skipan nefndarmanna í tilnefningarnefnd félagsins.

Líkt og fram kom í tilkynningu 25. febrúar sl. er framboðsfrestur til stjórnar liðinn og hafa eftirtaldir gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:

  1. Edda Blumenstein
  2. Guðjón Auðunsson
  3. Guðjón Reynisson
  4. Hjörleifur Pálsson
  5. Kristrún Tinna Gunnarsdóttir
  6. Sigurlína Ingvarsdóttir

Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórn skipuð fimm einstaklingum kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn.

Fundargögn og allar frekari upplýsingar varðandi aðalfundinn er hægt að nálgast á heimasíðu félagsins: https://www.festi.is/vidburdir/adalfundur-festi-2025

Nánari upplýsingar veitir Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi hf. (asta@festi.is).