Í 36. viku 2025 keypti Festi alls 170.000 eigin hluti fyrir 51.440.000 kr. eins og hér segir:
Vika | Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr) |
36 | 3.9.2025 | 13:29:12 | 80.000 | 300 | 24.000.000 |
36 | 4.9.2025 | 11:19:16 | 50.000 | 304 | 15.200.000 |
36 | 5.9.2025 | 12:41:58 | 40.000 | 306 | 12.240.000 |
170.000 | 51.440.000 |
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir kaupin þá átti Festi 1.731.226 hluti eða 0,55% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 1.655.000 eigin hluti fyrir 495.110.000 kr. og á í dag 1.901.226 hluti sem samsvarar 0,61% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 27. júní 2025 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 2.500.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,80% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 800 milljónir króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi hf. (mki@festi.is).
