Hagar hf. birta hálfsársuppgjör sitt, fyrir tímabilið 1. mars 2016 – 31. ágúst
2016, fimmtudaginn 27. október nk.
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn á skrifstofu
Haga, 3. hæð í Smáralind í Kópavogi, föstudaginn 28. október kl. 8:30 en þar
mun Finnur Árnason forstjóri Haga kynna afkomu félagsins og svara spurningum
ásamt stjórnendum félagsins.
Kynningarefni, ásamt upptöku af fundinum, verður aðgengilegt að honum loknum á
heimasíðu Haga, www.hagar.is.