Tilkynning frá Högum - skuldbindandi tilboð í allt hlutafé Lyfju

Hagar hf. tilkynntu mánudaginn 7. nóvember 2016 að félagið hefði lagt fram
skuldbindandi tilboð í allt hlutafé Lyfju hf.  Eigandi Lyfju hf. er Ríkissjóður
Íslands.  Tilboðið var lagt fram með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og
samþykki Samkeppniseftirlitsins.  Félagið mun hefja viðræður um kaup á félaginu
á grundvelli tilboðsins, en á þessari stundu er óljóst um niðurstöðu þeirra
viðræðna og þeirra fyrirvara sem tilboðið fól í sér.