Í dag var skrifað undir kaupsamning um kaup Haga hf. á 4.706,3 fm2 eignarhluta
í Skeifunni 11, auk hlutfallslegrar hlutdeildar í sameign. Seljandi er
Fönn-Þvottaþjónusta ehf. Mjög lítill hluti fasteignarinnar er í dag í útleigu
þar sem stór hluti eignarinnar skemmdist í bruna árið 2014 og hefur ekki verið
í útleigu síðan. Aðeins einn leigusamningur er í gildi en hann gildir til apríl
2017.
Kaupverðið er 1.714.000.000 og verður fjármagnað úr sjóði.
Gert er ráð fyrir afhendingu eignarinnar 13. janúar 2017.