Hagnaður Haga á 2F jókst um 25% milli ára

Uppgjör Haga hf. á 2. ársfjórðungi 2020/21

Árshlutareikningur Haga hf. fyrir annan ársfjórðung 2020/21 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 29. október 2020. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2020 til 31. ágúst 2020. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.

Helstu lykiltölur

Helstu fréttir af starfseminni

Finnur Oddsson, forstjóri:

„Afkoma á öðrum ársfjórðungi var góð og umfram væntingar, sem endurspeglar styrk Haga samstæðunnar í ögrandi aðstæðum eins og þeim sem heimsfaraldur COVID-19 veldur. Við erum ánægð með þennan árangur og sérstaklega viðsnúninginn frá fyrstu mánuðum árs þegar faraldurinn setti stórt strik í reikninginn í öllum okkar rekstri. 

Áhrifum COVID-19 er nokkuð misskipt eftir rekstrareiningum, en í samanburði við síðasta ár hefur verslana- og vöruhúsastarfsemi Haga gengið vel.  Við finnum hins vegar fyrir því að viðskiptavinir okkar hafa breytt kauphegðun sinni með því að fækka heimsóknum í matvöruverslanir. Á sama tíma hefur meðalkarfa í hverri heimsókn stækkað töluvert og niðurstaðan er góð tekjuaukning í rekstri Bónus, Hagkaups og sérvöruverslana sem og aukin hagkvæmni í rekstri vöruhúsa Haga, Aðfanga og Banana.

Eftir erfiðan fyrsta ársfjórðung færðist rekstur Olís til betri vegar og gekk vel á öðrum fjórðungi, yfir sumarmánuðina. Þar nutum við góðs af ferðagleði landsmanna auk þess sem breytingar á olíuverði voru hagfelldari en á fyrsta fjórðungi. Rekstur er enn undir áætlunum og fyrirsjáanlegt er að neikvæðra áhrifa COVID-19 mun áfram gæta í meiri mæli hjá Olís en í verslunareiningum Haga. Til að takast á við þær aðstæður er mikilvægt að gæta sérstaklega að hagkvæmni í rekstri eins og við höfum gert undanfarna mánuði.

Þessi ágæti árangur á öðrum ársfjórðungi er langt frá því að vera sjálfsagður. Mér er efst í huga þakklæti til starfsfólks allra eininga Haga sem hefur sýnt bæði aðlögunarhæfni og fórnfýsi í þeim undarlegu kringumstæðum sem farsóttin hefur skapað. Sérstaklega vil ég þar nefna starfsfólk í framlínu verslana og eldsneytisstöðva, sem á hverjum degi þjónar fjölda viðskiptavina okkar af kostgæfni, nú sem fyrr. Velferð og hagsmunir viðskiptavina, starfsfólks og samfélagsins hafa verið í forgrunni í öllum okkar aðgerðum. Við munum áfram gera allt sem í okkar valdi stendur til að viðhalda öflugum sóttvörnum en um leið lágmarka neikvæð áhrif á þjónustu og upplifun viðskiptavina okkar.

Samhliða því að bregðast við aðstæðum og treysta þjónustu við viðskiptavini, höfum við nýtt undanfarna mánuði til að móta áherslur í rekstri og stefnu félagsins til lengri tíma litið. Á næstu misserum munu Hagar einblína á kjarnastarfsemi og leggja ríkari áherslu á það sem við gerum best, sem er annars vegar á dagvörumarkaði og hins vegar á markaði með eldsneyti. Vörumerki Haga eru sterk og með langa sögu, en það verður markmið okkar að efla sérstöðu þeirra enn frekar og sjá til þess að heildin mæti ólíkum þörfum neytenda sem allra best. Við viljum jafnframt efla gagnkvæmt samtal við viðskiptavini okkar, m.a. eftir stafrænum leiðum, til að geta brugðist hraðar við nýjum þörfum og örum breytingum á neysluhegðun. Í allri þessari vinnu verður mikilvægasti áttavitinn okkar og grundvallarmarkmið að efla hag neytenda í gegnum framúrskarandi verslun.  Það eru skemmtilegir tímar fram undan hjá Högum.“


Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins (fo@hagar.is) og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar og samstæðu (geg@hagar.is), í síma 530-5500 eða tölvupósti.



Viðhengi: