Hagar hf.: Ársreikningur Haga 2024/25

Ársreikningur Haga hf. fyrir rekstrarárið 2024/25 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 30. apríl 2025. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2024 til 28. febrúar 2025. Ársreikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) og viðeigandi ákvæði laga um ársreikninga. Endurskoðendur félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf., hafa endurskoðað reikninginn og áritað hann fyrirvaralausri áritun.

Hagar birtu óendurskoðað stjórnendauppgjör samstæðunnar vegna rekstrarársins 2024/25 og 4. ársfjórðungs þann 15. apríl 2025. Engin frávik eru í endurskoðuðum ársreikningi frá þeim uppgjörsgögnum sem þegar hafa verið birt. Að öðru leyti en hér kemur fram vísast í uppgjörstilkynningu félagsins frá 15. apríl sl.


Helstu lykiltölur


Aðalfundur 2025 og arðgreiðslutillaga

Aðalfundur Haga verður haldinn þriðjudaginn 27. maí 2025 á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í Reykjavík og hefst hann kl. 15:00.

Stjórn Haga mun leggja til á aðalfundi félagsins að greiddur verði arður til hluthafa á árinu 2025 sem  nemur 50,0% af hagnaði ársins eftir skatta, án áhrifa af matsbreytingum og afkomu hlutdeildarfélaga. Arðgreiðslutillagan nemur samtals 2.504 millj. kr. eða um 2,3 kr. arður á hlut útistandandi hlutafjár.


Um Haga

Hagar er leiðandi verslunarfyrirtæki með fjölbreytta starfsemi á Íslandi, í Færeyjum og í Hollandi, einkum á dagvöru- og eldsneytismarkaði. Á Íslandi starfrækja Hagar 40 dagvöruverslanir, 22 Olís þjónustustöðvar, 43 ÓB-stöðvar, tvö vöruhús, eina framleiðslustöð, eina netverslun með matarpakka, eina birgðaverslun og eina sérvöruverslun. Kjarnastarfsemi Haga á Íslandi er á sviði dagvöru og tengdra vöruhúsa, auk eldsneytissölu. Í Færeyjum starfrækja Hagar verslunarfélagið SMS sem er leiðandi á færeyska markaðinum en SMS rekur m.a. 13 dagvöruverslanir, sex veitingastaði og þrjár sérvöruverslanir. Í Hollandi starfrækja Hagar eina netverslun með áfengi.


Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins (fo@hagar.is), og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs (geg@hagar.is), í síma 530-5500 eða tölvupósti.



Viðhengi: