Hagar hf.: Upplýsingar um birtingu uppgjörs 2. ársfjórðungs 2025/26

Hagar hf. birta uppgjör 2. ársfjórðungs, þ.e. fyrir tímabilið 1. júní til 31. ágúst 2025, eftir lokun markaða, fimmtudaginn 16. október nk.

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í Reykjavík, föstudaginn 17. október kl. 08:30. Þar munu Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum.

Fundinum verður auk þess streymt og er skráning á streymið hér: https://www.hagar.is/skraning.

Kynningargögn verða aðgengileg á íslensku á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar. Kynningargögn verða aðgengileg á ensku eigi síðar en 20. október nk. á https://www.hagar.is/en/.