Hagar hf.: Upplýsingar um birtingu stjórnendauppgjörs 2025/26 og uppgjörs 4. ársfjórðungs

Hagar hf. birta stjórnendauppgjör rekstrarársins 2025/26 og uppgjör 4. ársfjórðungs, þ.e. tímabilið 1. desember til 28. febrúar, eftir lokun markaða, fimmtudaginn 16. apríl nk. Endurskoðaður ársreikningur félagsins 2025/26 verður birtur þann 29. apríl nk.

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í Reykjavík, föstudaginn 17. apríl kl. 08:30. Þar munu Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum.

Fundinum verður auk þess streymt og er skráning á streymið hér: https://www.hagar.is/skraning.

Kynningargögn verða aðgengileg á íslensku á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar. Kynningargögn verða aðgengileg á ensku eigi síðar en 20. apríl nk.