Gott rekstrarár að baki - nýtt innkaupasamstarf lækkar vöruverð
Ársreikningur Haga hf. fyrir rekstrarárið 2025/26 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 29. apríl 2026. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2025 til 28. febrúar 2026. Ársreikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) og viðeigandi ákvæði laga um ársreikninga. Endurskoðendur félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf., hafa endurskoðað reikninginn og áritað hann fyrirvaralausri áritun.
Hagar birtu óendurskoðað stjórnendauppgjör samstæðunnar vegna rekstrarársins 2025/26 og 4. ársfjórðungs þann 16. apríl 2026. Engin frávik eru í endurskoðuðum ársreikningi frá þeim uppgjörsgögnum sem þegar hafa verið birt. Að öðru leyti en hér kemur fram vísast í uppgjörstilkynningu félagsins frá 16. apríl sl.
Helstu lykiltölur*
- Vörusala 4F nam 48.043 m.kr. (4,4% vöxtur frá 4F 2024/25). Vörusala 12M nam 197.043 m.kr. (9,3% vöxtur frá 12M 2024/25). [4F 2024/25: 46.037 m.kr., 12M 2024/25: 180.342 m.kr.]
- Framlegð 4F nam 12.296 m.kr. (25,6%) og 49.124 m.kr. (24,9%) fyrir 12M. [4F 2024/25: 11.508 m.kr. (25,0%), 12M 2024/25: 41.104 m.kr. (22,8%)]
- Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 4F nam 4.032 m.kr. eða 8,4% af veltu. EBITDA 12M nam 18.129 m.kr. eða 9,2% af veltu. [4F 2024/25: 3.857 m.kr. (8,4%), 12M 2024/25: 14.738 m.kr. (8,2%)]
- Hagnaður 4F nam 1.981 m.kr. eða 4,1% af veltu. Hagnaður 12M nam 7.394 m.kr. eða 3,8% af veltu. [4F 2024/25: 3.066 m.kr. (6,7%), 12M 2024/25: 7.030 m.kr. (3,9%)]
- Heildarafkoma 4F nam 1.836 m.kr. og 7.741 m.kr. fyrir 12M. [4F 2024/25: 6.735 m.kr., 12M 2024/25: 10.699]
- Grunnhagnaður á hlut 4F var 1,81 kr. og 6,75 kr. fyrir 12M. [4F 2024/25: 2,81 kr., 12M 2024/25: 6,47 kr.]. Þynntur hagnaður á hlut 4F var 1,66 kr. og 5,94 kr. fyrir 12M. [4F 2024/25: 2,71 kr., 12M 2024/25: 6,30 kr.]
- Eigið fé nam 42.779 m.kr. í lok árs og eiginfjárhlutfall 37,1%. [Árslok 2024/25: 38.489 m.kr. og 36,5%]
- Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2025/26 gerði ráð fyrir að EBITDA yrði á bilinu 17.600-18.100 m.kr.
- Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2026/27 gerir ráð fyrir að EBITDA verði á bilinu 18.800-19.300 m.kr.
*SMS varð hluti af samstæðu Haga á 4. ársfjórðungi 2024/25 og gætir áhrifa þeirra því aðeins á síðasta ársfjórðungi í samanburðartölum fyrra árs.
Helstu fréttir af starfsemi
- Góður ársfjórðungur að baki með ágætri veltuaukningu og góðri afkomu af öllum starfsþáttum – SMS nú á 4F í fyrsta sinn í samanburðartölum fyrra árs.
- Afnám olíugjalds um áramót hefur áhrif á veltu samstæðunnar en söluvöxtur hefði verið um 6,4% með óbreyttu olíugjaldi – framlegð í krónum óbreytt en framlegðarhlutfall hækkar.
- Heimsóknum viðskiptavina í dagvöruverslanir félagsins á Íslandi fjölgaði um 6,8% á 4F - seldum stykkjum fjölgaði um 3,2%.
- Seldum eldsneytislítrum fjölgaði um 1,2% á fjórðungnum – aukning bæði í smásölu og sölu til stórnotenda.
- Heimsóknum viðskiptavina hjá SMS í Færeyjum fjölgaði um 2,2% á fjórðungnum.
- Matsbreyting fjárfestingarfasteigna var neikvæð á 4F um 189 m.kr. en til samanburðar nam jákvæð matsbreyting síðasta árs 1.042 m.kr., þar af 922 m.kr. vegna einskiptisáhrifa fasteigna í rekstrarleigu hjá SMS.
- Hagar og Salling Group hefja innkaupasamstarf sem gerir Högum – Bónus og Hagkaup - kleift að lækka verð á hundruðum vara.
- Vinna við nýja miðlæga rekstrareiningu, Haga miðla, á lokametrunum en kynningarviðburður verður haldinn fyrir samstarfsaðila þann 17. apríl.
- Nýtt vildarkerfi Haga, Takk, sem gefið var út þann 14. janúar hefur fengið góðar viðtökur og „Takkarar“ eru nú orðnir tæplega 60 þúsund talsins.
- Framkvæmdir hafnar við standsetningu á aðstöðu fyrir Eldum rétt og Ferskar kjötvörur við Álfabakka 2 – gjaldfærður kostnaður vegna leigu 133 m.kr. á 4F.
- Hlutdeild Haga í hagnaði Klasa fasteignarþróunarfélags nam 828 m.kr. á 4F.
Aðalfundur 2026 og arðgreiðslutillaga
Aðalfundur Haga verður haldinn fimmtudaginn 21. maí 2026 á Hilton Reykjavík Nordica (Vox Club), Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík og hefst hann kl. 15:00.
Stjórn Haga mun leggja til á aðalfundi félagsins að greiddur verði arður til hluthafa á árinu 2026 sem nemur 50,0% af hagnaði ársins eftir skatta, án áhrifa af matsbreytingum og afkomu hlutdeildarfélaga. Arðgreiðslutillagan nemur samtals 3.300 millj. kr. eða um 3,03 kr. arður á hlut útistandandi hlutafjár.
Nánari upplýsingar um dagskrá aðalfundar verður að finna í aðalfundarboði sem birtist á morgun, þann 30. apríl 2026.
Um Haga
Hagar er leiðandi verslunarfyrirtæki með fjölbreytta starfsemi á Íslandi, í Færeyjum og í Hollandi, einkum á dagvöru- og eldsneytismarkaði. Á Íslandi starfrækja Hagar 40 dagvöruverslanir, 22 Olís þjónustustöðvar, 45 ÓB-stöðvar, tvö vöruhús, eina framleiðslustöð, eina netverslun með matarpakka, eina birgðaverslun og eina sérvöruverslun. Kjarnastarfsemi Haga á Íslandi er á sviði dagvöru og tengdra vöruhúsa, auk eldsneytissölu. Í Færeyjum starfrækja Hagar verslunarfélagið SMS sem er leiðandi á færeyska markaðinum en SMS rekur m.a. 13 dagvöruverslanir, sjö veitingastaði og fjórar sérvöruverslanir. Í Hollandi starfrækja Hagar eina netverslun með áfengi.
Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins (fo@hagar.is), og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs (geg@hagar.is), í síma 530-5500 eða tölvupósti.
