Samkvæmt drögum að árshlutareikningi fyrir þriðja ársfjórðung 2015 var afkoma
félagsins betri á fjórðungnum en ráðgert var þegar félagið uppfærði síðast
afkomuspá sína. Jafnframt hafa afkomuhorfur fyrir fjórða ársfjórðung styrkst og
er uppfærð EBITDA spá félagsins 210-215 milljónir USD fyrir árið 2015. Síðasta
útgefna spá hljóðaði upp á 180-185 milljónir USD.
Samkvæmt drögunum verður EBITDA þriðja ársfjórðungs um 150 milljón USD
samanborið við um 124 milljónir USD á árinu 2014. Helstu ástæður fyrir betri
afkomu á þriðja ársfjórðungi en gert hafði verið ráð fyrir eru hærri
farþegatekjur og lægri eldsneytiskostnaður, auk þess sem viðhaldskostnaður var
lægri en áætlað hafði verið.
Í afkomuspá fyrir fjórða ársfjórðung gerir félagið ráð fyrir að EUR/USD
krossinn verði að meðaltali 1,12. Eldsneytisverð félagsins í október liggur
þegar fyrir, en í spánni er gert ráð fyrir að verðið verði að meðaltali, án
varna, 480 USD/tonn í nóvember og 550 USD/tonn í desember.
Árshlutareikningur félagsins fyrir þriðja ársfjórðung 2015 verður birtur eftir
lokun markaða þann 29. október n.k. og kynningarfundur fyrir markaðsaðila
verður haldinn 30. október kl. 8.30.
Nánari upplýsingar veita:
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
bubbi@icelandairgroup.is
896 1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála
bogi@icelandairgroup.is
665 8801